Kynningarfundur 21. nóvember 2018
Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2018 eftir lokun markaða þriðjudaginn 20. nóvember 2018.
Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða ársins 2018.
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 21. nóvember 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:15.
Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.