Gylfi Sigfússon, forstjóri
„Rekstrarhagnaður Eimskips fyrir afskriftir á fyrsta ársfjórðungi nam 7,2 milljónum evra og jókst um 6,5% frá fyrra ári. Hagnaður eftir skatta nam 2,5 milljónum evra samanborið við 0,6 milljóna evra hagnað á sama tímabili í fyrra.
Flutningsmagn í áætlanaflutningum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst lítillega eða um 0,3% miðað við sama tímabil 2012. Töluverður vöxtur hefur verið í flutningum til og frá Færeyjum og í flutningum á milli Evrópu og Norður-Ameríku en samdráttur hefur verið í flutningum til Íslands og í Noregi. Magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 13,1% í samanburði við árið á undan, einkum vegna aukinna flutninga innan Asíu.
Eimskip kynnti í byrjun mars umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi félagsins þar sem einu skipi var bætt við kerfið og jafngildir það 7,7% aukningu í afkastagetu. Breytt siglingakerfi opnar möguleika fyrir viðskiptavini Eimskips og fyrir nýja tekjumyndun fyrir félagið. Helstu breytingar eru vikulegar strandsiglingar, nýjar viðkomur í Færeyjum, Skotlandi, Póllandi og Bandaríkjunum. Í tengslum við breytingar á siglingakerfinu opnaði félagið skrifstofu í Gdynia í Póllandi í byrjun mars og var fyrsta viðkoma félagsins í Swinoujscie í Póllandi í apríl. Með þessari breytingu á siglingakerfinu fær Eimskip tækifæri til að sækja inná nýja markaði í Eystrasaltinu og þjónusta betur þá fjölmörgu viðskiptavini félagsins sem selja sjávarafurðir inná þann markað frá Íslandi, Færeyjum og Noregi.
Það mun taka tíma að byggja upp magn í breyttu siglingakerfi en viðskiptavinir hafa tekið breytingunum vel og höfum við nú þegar skrifað undir nýja samninga samtals að verðmæti þrjár til fjórar milljónir evra í sjóflutningstekjur á ársgrundvelli. Breytingarnar koma bæði viðskiptavinum og fyrirtækinu til góða með aukinni hagkvæmni, lækkun kostnaðar og minni umferð á þjóðvegum á Íslandi. Sem dæmi má nefna að fyrstu tvo mánuðina eftir að strandflutningar hófust höfum við ekið um 150 þúsund færri kílómetra en áður.
Eimskip samdi í apríl um rúmlega 20% lækkun á kaupverði gámaskipanna tveggja sem félagið er með í smíðum í Kína. Nemur lækkunin samtals 10 milljónum dollara fyrir bæði skipin. Upphaflega var gert ráð fyrir að skipin yrðu afhent á þessu ári en samið var um að afhending þeirra yrði á fyrri hluta árs 2014. Breyting á afhendingartíma skipanna mun ekki hafa áhrif á þjónustu við viðskiptavini.
Félagið leggur áfram sérstaka áherslu á uppbyggingu á Norður-Atlantshafi í tengslum við möguleg verkefni tengd stóriðju, olíu og námuvinnslu, ásamt hafnarþjónustu og annarri tengdri þjónustu. Félagið fylgist einnig með og metur möguleg tækifæri tengd Norðurheimsskautssiglingum framtíðarinnar.“
Frekari upplýsingar