Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Innanlandssviðs Eimskips, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Edda mun sinna störfum sínum fram á sumarið eða þar til ráðið verður í starfið.
„Síðustu sjö ár hafa verið viðburða- og lærdómsrík á miklum umbreytingartímum hjá Eimskip. Mig langar að þakka frábæru samstarfsfólki, stjórn og viðskiptavinum kærlega fyrir gott samstarf. Vilhelm forstjóra langar mig að þakka sérstaklega fyrir einstaka vináttu, traust og tækifæri síðustu ár. Ég óska Eimskip og samstarfsfólki alls hins besta," segir Edda Rut.
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips:
„Edda hefur komið að fjölbreyttum verkefnum innan Eimskips síðustu ár og leitt þar mikilvægar breytingar m.a. á menningu félagsins og á rekstri Innanlandssviðs. Ég vil þakka henni fyrir frábært samstarf á undanförnum árum og óska henni góðs gengis á nýjum vettvangi.“
Nánari upplýsingar veitir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 7379, netfang harpa@eimskip.com.