Bráðabirgðahluthafalisti í framhaldi af lokuðu útboði

Með vísan til niðurstöðu lokaðs útboðs sem tilkynnt var um 25. október er meðfylgjandi listi yfir 10 stærstu hluthafa Eimskips byggt á því að öll viðskipti lokaðs útboðs nái fram að ganga. Athygli er vakin á því að listinn byggir á áskriftum úr lokuðu útboði og hluthafalista Eimskips frá Verðbréfaskráningu Íslands þann 26. október 2012. Ekki er því um formlegan hluthafalista að ræða, heldur bráðabirgðahluthafalista.

Í lokaða útboðinu var góð þátttaka og meðal fjárfesta sem skráðu sig fyrir hlutum eru sjóðastýringarfélög, fjársterkir einstaklingar og lífeyrissjóðir. Einungis einn fjárfestir sem þátt tók í lokaða útboðinu er á meðal 10 stærstu hluthafa félagsins m.v. bráðabirgðahluthafalista.

 

Nafn Fjöldi hluta Hlutfall af
útgefnu hlutafé
Yucaipa American Alliance Fund II, LP 30.504.030 15,3%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 29.135.070 14,6%
Landsbanki Íslands hf. 24.725.099 12,4%
Yucaipa American Alliance (Parallel) 20.095.970 10,0%
Eimskipafélag Íslands hf. 11.918.820 6,0%
A1988 hf. 8.441.950 4,2%
J.P. Morgan Clearing Corporation 7.672.360 3,8%
ALMC hf. 5.448.891 2,7%
Horn Fjárfestingarfélag hf. 2.898.250 1,4%
Íslandssjóðir hf. - Sjóður 10 2.838.967 1,4%