EIMSKIP: Uppgjör annars ársfjórðungs 2021

Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs

Helstu atriði í afkomu fyrstu sex mánaða ársins 2021 

VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI

„Ég er mjög ánægður með rekstrarárangur annars ársfjórðungs sem fór fram úr væntingum okkar. Við erum að sjá árangur af mikilli vinnu starfsfólks við mörg umbótaverkefni t.d. tekjustýringu, hagræðingar- og samþættingarverkefni og við að fínstilla framleiðslukerfin okkar. Einnig hafa markaðsaðstæður verið okkur í hag, þrátt fyrir að vera krefjandi. Ég er gríðarlega ánægður með seiglu og útsjónarsemi starfsfólks á þessum krefjandi tímum sem einnig leggur grunninn að góðum rekstrarárangri.

Fjárhagslega litaðist fjórðungurinn og fyrstu sex mánuðir ársins af ójafnvægi á alþjóðlegum flutningamörkuðum sem leiddi til m.a. hærri tekna og hærri kostnaðar. Þá er þróun á alþjóðlegum leigu skipamörkuðum áhyggjuefni þar sem leiguverð er mjög hátt og er sú staða talin geta varað inn í árið 2022 hið minnsta.

Aðlöguð EBITDA á fjórðungnum var sterk og nam 29,7 milljónum evra. Hækkunina má að mestu leiti skýra með auknu magni og hagstæðari samsetningu flutningsmagns, tekjustýringu og hærra hlutfalli af Trans-Atlantic flutningum. Magn í Trans-Atlantic flutningum hélt áfram að vaxa á fjórðungnum með jákvæðum framlegðaráhrifum þar sem verð í þeim flutningum eru yfir meðaltalsverðum. Að auki var góður árangur í alþjóðlegri flutningsmiðlun þrátt fyrir sveiflur á flutningamörkuðum. Hlutfall tekna í starfsemi Eimskips sem eiga uppruna sinn utan Íslands var 57% á fjórðungnum og hefur vaxið úr 45% frá árinu 2016.

Í  júní gerði Eimskip sátt við Samkeppniseftirlitið í gamla samkeppnismálinu sem varðaði árin 2008-2013. Þrátt fyrir neikvæðu fjárhagslegu áhrifin af sektinni var það mat stjórnar Eimskips að best væri fyrir heildarhagsmuni félagsins að ljúka þessu gamla máli með sátt.

Að teknu tilliti til rekstrarniðurstaðna fyrir fyrstu sex mánuði ársins, stjórnendauppgjörs fyrir júlí sem nú liggur fyrir, núverandi spár fyrir ágúst og horfur fyrir magn og framlegð það sem eftir lifir árs er uppfærð aðlöguð afkomuspá fyrir árið 2021 nú á bilinu 90-100 milljónir evra. Vegna þeirrar óvissu og ójafnvægis sem  er viðvarandi á alþjóðlegum flutningamörkuðum höldum við áfram að hafa tiltölulega breitt bil í spánni.“

RAFRÆNN KYNNINGARFUNDUR 20. ÁGÚST 2021

Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti samandreginn árshlutareikning samstæðu Eimskips fyrir annan ársfjórðung  2021 á stjórnarfundi þann 19. ágúst 2021. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 20. ágúst kl. 8:30. Fundurinn verður eingöngu rafrænn og verður honum streymt beint á fjárfestasíðu Eimskips www.eimskip.com/investors. Þar mun Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri kynna uppgjör félagsins fyrir annan ársfjórðung. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður einnig hægt að nálgast á fjárfestasíðunni.

FREKARI UPPLÝSINGAR

Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 3399, netfang: investors@eimskip.com .

TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA

Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.