Eimskip birtir ársreikning 2017 og uppgjör fjórða ársfjórðungs

Eimskipafélag Íslands hf. birtir ársreikning fyrir árið 2017 og uppgjör fjórða ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 22. febrúar 2018.

Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon forstjóri og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, munu kynna uppgjör félagsins fyrir árið 2017 og uppgjör fjórða ársfjórðungs.

Fundurinn verður haldinn föstudaginn 23. febrúar 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:15.

Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors.