Hagnaður Eimskips jókst um 30,8% á milli ára

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Rekstrarniðurstaða ársins 2015 var í samræmi við væntingar okkar, 10,6% tekjuvöxtur og 17,3% hækkun EBITDA frá fyrra ári. Árið skilaði hæstu rekstrartekjum og EBITDA frá árinu 2009. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 4,2% á milli ára. Mikill vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi á meðan magn tengt Færeyjum dróst lítillega saman vegna breytts flutningamynsturs á uppsjávarfiski. Góður gangur hefur verið í Noregi eftir erfiðleika á fyrsta ársfjórðungi. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 7,5% á milli ára.

Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi námu 130,6 milljónum evra og jukust um 9,9% samanborið við sama ársfjórðung 2014. EBITDA nam 9,7 milljónum evra á fjórðungnum og jókst um 10,2% samanborið við fjórða ársfjórðung árið áður, en að teknu tilliti til óreglulegs kostnaðar jókst EBITDA um 20.4%. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 10,1% og magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 6,6% samanborið við fjórða ársfjórðung 2014.

Á árinu 2015 gekk félagið frá kaupum á fimm fyrirtækjum sem hafa verið innleidd í samstæðuna og eru að skila góðri afkomu. Félagið heldur áfram að meta möguleg fjárfestingartækifæri til vaxtar í samræmi við stefnu félagsins. Sterk fjárhagsstaða Eimskips og þau tækifæri sem eru í greininni setja félagið í góða stöðu til að ráðast í slík verkefni.

Eimskip hefur tekið á leigu gámaskipið Ceres, 880 gámaeininga kranalaust skip, frá og með marsmánuði. Skipið er systurskip Lagarfoss sem félagið lét smíða og tekið var í notkun á árinu 2014. Nafni Ceres verður breytt í Bakkafoss og mun skipið þjóna á gulu leiðinni þar sem það leysir af hólmi Brúarfoss, 724 gámaeininga skip, sem fært verður á aðra leið eða í önnur verkefni. Nýr hafnarkrani verður tekinn í notkun í Sundahöfn í mars og verður krani úr Sundahöfn fluttur til Vestmannaeyja. Með þessum breytingum mun félagið hafa möguleika á að nota kranalaus skip á bláu og gulu leiðinni.

Skip á gulu leiðinni munu á öðrum ársfjórðungi hefja reglulegar viðkomur í Helguvík til að þjóna kísilmálmframleiðslu United Silicon og öðrum fyrirtækjum á svæðinu.

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2016 sem nemur 6,50 krónum á hlut, en það er 30% hækkun frá fyrra ári þegar arðgreiðslan nam 5,00 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 1.213,2 milljónum króna, eða 8,5 milljónum evra.

Fyrstu vikur ársins lofa góðu í samanburði við síðasta ár, bæði hvað varðar magn og afkomu. Afkomuspá okkar fyrir árið 2016 er EBITDA á bilinu 46 til 50 milljónir evra. Áætluð afkoma tengd nýjum fjárfestingum í fyrirtækjum og innviðum er ekki talin með í afkomuspá ársins.“

Frekari upplýsingar