Afkoma Eimskips á þriðja ársfjórðungi 2012 í samræmi við væntingar

 

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Rekstrarhagnaður Eimskips fyrir afskriftir á þriðja ársfjórðungi 2012 er að aukast á milli ára og er í samræmi við væntingar félagsins að teknu tilliti til kostnaðar að fjárhæð 0,7 milljónir evra vegna undirbúnings skráningar félagsins á NASDAQ OMX Iceland. Hlutabréf félagsins voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar 16. nóvember síðastliðinn.

Flutningsmagn í áætlanaflutningum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 6,3% fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tímabil 2011 og er það ánægjuleg þróun. Á árinu 2011 var ákveðið að bæta við öðru skipi á Ameríkuleið og tengja þannig Norður-Ameríku við Norður-Noreg. Viðbótarskipið er nú að skila auknu magni og tekjum. Magn í frystiflutningsmiðlun á þriðja ársfjórðungi dróst saman um 12,7% frá fyrra ári sem endurspeglast í þróun markaða í Asíu, en þrátt fyrir að magnið sé að minnka þá hefur framlegðin í frystiflutningsmiðlun ekki lækkað að sama skapi. Helstu ástæður fyrir minnkandi magni tengjast ekki flutningi á frystum sjávarafurðum heldur minnkandi flutningum á öðrum afurðum frá Asíu til Evrópu.

Horfur í flutningum á Norður-Atlantshafi eru ágætar en töluverður vöxtur hefur verið í flutningum  frá Noregi og Færeyjum og í flutningum á milli Evrópu og Norður-Ameríku. Flutningar til og frá Íslandi hafa verið að vaxa en ákveðin óvissa er um útflutning sjávarafurða vegna mikillar birgðasöfnunar og lækkandi afurðaverðs á ákveðnum mörkuðum. Enn er óvissa um fjárfestingar í orkufrekum iðnaði á Íslandi sem haft geta áhrif á flutningamagn á næstu misserum. Eimskip leggur áfram áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu, en það hefur meðal annars verið gert með því að styrkja skipa-, gáma- og tækjakost félagsins með fjárfestingum fyrir 38,8 milljónir evra á fyrstu níu mánuðum ársins. Gert er ráð fyrir að gámaskipin tvö sem eru í smíðum fyrir félagið í Kína verði afhent á árinu 2013, en þau munu styrkja siglingakerfi og þjónustuframboð Eimskips.“

 

Frekari upplýsingar