Eimskip: Afkoma af rekstri fyrstu níu mánuði ársins í samræmi við væntingar

Helstu atriði í afkomu þriðja ársfjórðungs 2019

Helstu atriði í afkomu fyrstu níu mánaða ársins

VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI

“Ég er heilt yfir sáttur við afkomu Eimskips á þriðja ársfjórðungi og fyrstu níu mánuðum ársins sem eru í samræmi við væntingar, þrátt fyrir minni innflutning til Íslands. Ég er ánægður að sjá EBITDA og hagnað af flutningsmiðlunarstarfseminni aukast milli ára þrátt fyrir að magn hafi dregist saman vegna aflagðrar starfsemi og spennu í alþjóðaviðskiptum.

Afkoma af alþjóðlegri starfsemi félagins var í samræmi við væntingar. Starfsemin okkar í Noregi hélt áfram að bæta afkomu sína í kjölfar ýmissa hagræðingaraðgerða fyrr á árinu og Trans-Atlantic flutningar hafa vaxið um tveggja stafa tölur á árinu 2019 sem hefur haft jákvæð áhrif t.d. á starfsemi okkar í Norður Ameríku. Á þriðja ársfjórðungi var tekin ákvörðun um að loka skrifstofu Eimskips í Belgíu og sameina hluta af starfseminni við skrifstofu Eimskips í Rotterdam. Þessi aðgerð leiðir af sér fækkun um 11 starfsmenn. Einskiptisgreiðsla fellur til vegna þessa á fjórða ársfjórðungi 2019, en áætlað er að breytingarnar leiði til lækkunar rekstrarkostnaðar um 0,3-0,4 milljónir evra á ársgrundvelli þegar til framtíðar er litið. Skrifstofu okkar í Murmansk var lokað á þriðja ársfjórðungi og ábyrgð á þjónustu við svæðið var færð til Sortland í Noregi. Að auki höfum við sameinað nokkrar aðrar skrifstofur á árinu 2019. Þetta er í samræmi við vegferð félagsins um aukna samþættingu og áherslu á kjarnastarfsemi.

Minni innflutningur til Íslands vegna kólnunar íslenska hagkerfisins hefur áfram áhrif á afkomu í gámasiglingum. Útflutningur drógst saman yfir sumartímann, bæði frá Íslandi og Færeyjum, en jókst síðan í síðari hluta ágústmánaðar. Þegar á heildina er litið hefur magn til og frá Færeyjum verið í samræmi við áætlanir það sem af er ári.

Mér finnst ánægjulegt að sjá góðan árangur á Innanlandssviði á Íslandi þrátt fyrir minna magn í innflutningi og krefjandi umhverfi.

Samþættingar og skipulagsbreytingar eru að skila sér í hagræðingu sem sést t.d. bæði í lægri kostnaði stjórnunareininga og í starfseminni almennt. Launakostnaður lækkaði um 4,7 milljónir evra samanborið við fyrstu níu mánuði ársins 2018, en þar af eru 3,4 milljónir evra vegna samþættingarverkefna. Starfsmönnum hefur fækkað um 55 á árinu og eru nú 1750 talsins.

Nýtt gámasiglingakerfi var kynnt í október. Með einfaldara siglingakerfi og stærri skipum munum við geta bætt þjónustu og áreiðanleika siglingakerfisins ásamt því að lækka fastan rekstrarkostnað. Markmiðið um lækkun rekstrarkostnaðar með nýju siglingakerfi, þar með talið með samstarfinu við Royal Arctic Line, er á bilinu 7-9 milljónir evra á ársgrundvelli.

Eins og áður hefur verið tilkynnt um kom upp bilun í Brúarfossi, annarri nýsmíðinni, þegar ásrafall skemmdist í prufusiglingu. Af því leiðir að upphaf samstarfsins við Royal Arctic Line mun frestast frekar og er gert ráð fyrir að það hefjist á öðrum ársfjórðungi 2020. Við búumst við því að fá Dettifoss afhentan á fyrsta ársfjórðungi og Brúarfoss á þriðja ársfjórðungi 2020. Félagið á í samningaviðræðum við skipasmíðastöðina í Kína varðandi næstu skref og tafabætur vegna seinkunar á afhendingu.

Að lokum má nefna að við kynnum nú markmið um framtíðar fjármagnsskipan félagsins og þriggja ára fjárfestingaáætlun. Okkar markmið er að viðhalda eiginfjárhlutfalli nálægt 40% og hóflegu skuldsetningarhlutfalli sem væri 2-3 sinnum nettó vaxtaberandi skuldir á móti EBITDA. Markmiðið með þessu er að auka gagnsæi og fyrirsjáanleika og þar með auka þjónustu við fjárfesta og greinendur á markaði.”

FREKARI UPPLÝSINGAR