Eimskip kynnir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2015

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Hagnaður Eimskips eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi 2015 er umfram væntingar, einkum vegna jákvæðs gengismunar. Rekstrartekjur jukust um 8,1% frá fyrsta ársfjórðungi 2014. EBITDA nam 5,8 milljónum evra, sem er svipað og í fyrra eða 0,2 milljóna evra lægri fjárhæð en á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Hagnaður eftir skatta nam 1,5 milljónum evra samanborið við 0,8 milljóna evra tap á fyrsta ársfjórðungi í fyrra, en það er jákvæður viðsnúningur um 2,3 milljónir evra. Fyrsti ársfjórðungur er sá ársfjórðungur hjá félaginu sem að jafnaði skilar lægstri rekstrarafkomu.

Helstu gjaldmiðlarnir í rekstri félagsins eru evra, Bandaríkjadollar, íslensk króna og norsk króna. Gengissveiflur, þar sem Bandaríkjadollar, íslensk króna og norsk króna styrktust gagnvart evru, leiddu til gengishagnaðar að fjárhæð 2,9 milljónir evra samanborið við gengistap að fjárhæð 0,2 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2014.

Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi dróst saman um 3,2% frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs vegna samdráttar í magni frá Noregi, en þar í landi höfðu slæm veðurskilyrði mikil áhrif á sjávarútveginn. Landanir á þorski í Noregi drógust saman um 23% frá sama tímabili í fyrra, en magnið hefur þróast með eðlilegum hætti á síðustu vikum sem eykur magn bæði í línukerfum félagsins og flutningsmiðlun. Vöxtur var í magni til og frá Íslandi og Færeyjum. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 4,1% frá fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Samdráttur í flutningum frá Noregi vegna dræmra veiða hafði áhrif á magnið auk þess sem almennt hefur dregið úr flutningi á fiski frá Evrópu til Asíu. Markaðir í Asíu hafa samt sem áður haldið áfram að vaxa.

Slæm veðurskilyrði höfðu áhrif á reksturinn á fyrsta ársfjórðungi. Skip félagsins áttu erfitt með að halda áætlun vegna þessa og kostnaður jókst vegna yfirvinnu og aukinnar olíunotkunar. Að auki lentu frystiskip félagsins í Noregi í óvæntum bilunum á tímabilinu. Innanlandsstarfsemin á Íslandi varð einnig fyrir áhrifum af slæmu veðri, einkum landflutningarnir og hafnarstarfsemin.

Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins hefur vaxið umfram væntingar það sem af er öðrum ársfjórðungi og vöxturinn fyrstu sex vikur fjórðungsins nemur 4,5% frá sama tímabili 2014, einkum þar sem flutningar í Noregi hafa náð sér aftur á strik og einnig vegna áframhaldandi vaxtar í flutningum til og frá Íslandi. Í apríl og byrjun maí þurfti tímabundið að bæta við skipi til að auka flutningsgetuna og þrisvar þurfti að senda gráu leiðina, sem siglir á milli Færeyja og Skotlands, til meginlands Evrópu til að auka við flutningsgetu félagsins vegna yfirbókana frá Evrópu. Aukning magns í frystiflutningsmiðlun í apríl nemur 11,0% frá sama mánuði í fyrra.

Í apríl voru gerðar frekari breytingar á bláu og gulu leiðinni, en þær munu héðan í frá skiptast á að hafa viðkomu í Hamborg og aðra hverja viku mun gula leiðin koma við í nýrri höfn, Vlissingen í Hollandi, vegna þjónustu við áliðnaðinn á Íslandi. Vegna aukins bílainnflutnings mun gráa leiðin áfram hjálpa til við að taka við auknu flutningsmagni frá Evrópu þar til jafnvægi næst aftur.

Fyrirtækin sem Eimskip fjárfesti í á fyrsta ársfjórðungi munu skila sér að fullu inn í rekstur félagsins fyrir lok annars ársfjórðungs. Útlit er fyrir jákvæða þróun flutningsmagns bæði í áætlunarsiglingum Eimskips og í flutningsmiðlun.

Félagið, eins og önnur fyrirtæki á Íslandi, stendur frammi fyrir óvissu á vinnumarkaði er varðar neikvæð áhrif mögulegra verkfalla á komandi vikum á rekstur félagsins. Til viðbótar við innflutningsbann Rússlands á Noreg og Nýfundnaland þarf félagið nú einnig að glíma við óvissu varðandi nýjar reglur í Kína er snúa að sérstöku eftirliti með innfluttum afurðum frá Noregi, en það getur leitt til tafa sem komið geta útflytjendum í Noregi í vanda.

Eimskip og Íslandsbanki undirrituðu í apríl 10 milljóna evra langtíma lánasamning vegna byggingar á 10 þúsund tonna frystigeymslu Eimskips í Hafnarfirði. Auk þess var undirrituð lánalína að fjárhæð 12 milljónir evra til að styðja við frekari fjárfestingar félagsins. Eimskip hefur einnig gengið frá samningum um bætt vaxtakjör við lánastofnanir á Íslandi á lánum sem nema alls 45 milljónum evra.

Eimskip metur enn stöðu sína varðandi smíði á Bakkafossi sem ekki hefur gengið samkvæmt áætlun. Eins og áður hefur komið fram var afhending áætluð á fjórða ársfjórðungi þessa árs, en gert er ráð fyrir frekari töfum og er ákvörðunar varðandi skipið að vænta fyrir lok ágústmánaðar.

Eimskip festi í byrjun maí kaup á öllu hlutafé í fyrirtækinu Sæferðum ehf. í Stykkishólmi. Fyrirtækið sinnir sjótengdri ferðaþjónustu á Breiðafirði og rekur ferjuna Baldur og skipið Særúnu. Beðið er eftir samþykki Samkeppniseftirlitsins svo kaupin geti gengið í gegn.

Stjórn og stjórnendur Eimskips halda áfram að meta möguleg fjárfestingartækifæri til vaxtar í samræmi við framtíðarsýn félagsins. Eins og fram kom í ræðu stjórnarformanns á aðalfundi félagsins í mars stefnir Eimskip áfram að tvíhliða skráningu á hlutabréfum félagsins og hefur Seðlabanki Íslands veitt sitt samþykki. Frekari skref í átt að tvíhliða skráningu tengjast þeim fjárfestingarverkefnum sem unnið er að, markaðsaðstæðum, stöðu fjármagnshafta á Íslandi og stöðu rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á málefnum félagsins.

Afkomuspá okkar fyrir árið 2015 er óbreytt, eða EBITDA á bilinu 39 til 44 milljónir evra.“

Frekari upplýsingar