Áætluð EBITDA á fyrsta ársfjórðungi á bilinu 7,0 til 7,5 milljónir evra. Afkomuspá ársins er EBITDA á bilinu 57 til 63 milljónir evra

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir fyrsta ársfjórðung 2018 er áætluð EBITDA á ársfjórðungnum á bilinu 7,0 til 7,5 milljónir evra, samanborið við 9,3 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi 2017. Á fyrsta ársfjórðungi 2017 hafði sjómannaverkfall á Íslandi og aðrir einskiptisliðir neikvæð áhrif á EBITDA um 2,3 milljónir evra.

Á fyrsta ársfjórðungi 2018 nam vöxtur á öllum sex leiðum í áætlunarsiglingum félagsins 4%. Innflutningur til landsins var undir væntingum, útflutningur jókst vegna aukins magns af ferskum og frosnum fisk í kerfum félagsins, en loðnuvertíðin hafði neikvæð áhrif á magn í útflutningi. Aukning hefur verið í Trans-Atlantic flutningum. Innflutningur til Færeyja jókst en útflutningur var undir væntingum. Reksturinn í Noregi er í takt við fyrra ár. Kostnaður tengdur stækkun á siglingakerfi félagsins nam 2,5 milljónum evra. Gert er ráð fyrir að magn tengt samningi félagsins við CMA CGM á Grænu línunni á milli Halifax og Portland muni skila sér á öðrum ársfjórðungi. Þá er einnig gert ráð fyrir að flutningur fyrir kísilver PCC á Bakka á strandleiðinni hefjist á öðrum ársfjórðungi.

Magn í flutningsmiðlun félagsins jókst um 10% að mestu vegna innri vaxtar. Þrátt fyrir aukningu í magni er afkoma flutningsmiðlunar undir væntingum sem skýrist að mestu leyti vegna aðstæðna í Afríku sem eru tilkomnar vegna skorts á erlendum gjaldeyri. Það ástand hófst á fjórða ársfjórðungi síðasta árs og hélt áfram á fyrsta ársfjórðungi 2018.

Veiking dollars um 16% gagnvart evru frá fyrsta ársfjórðungi 2017 hefur neikvæð áhrif á afkomu félagsins vegna vægis dollars í myntsamsetningu félagsins.

Félagið vinnur enn að uppgjöri ársfjórðungsins. Ofangreind afkomuspá getur því tekið breytingum í uppgjörsferlinu.

Fyrsti ársfjórðungur er venjulega sá fjórðungur sem skilar lægstri framlegð í rekstri félagsins og hefur að meðaltali skilað 16,5% af EBITDA ársins undanfarin fimm ár. Í ljósi lakari afkomu á fyrsta ársfjórðungi en gert var ráð fyrir, hefur afkomuspá ársins verið aðlöguð í 57-63 milljónir evra.

Í samræmi við fjárhagsdagatalfélagsins mun Eimskip birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2018 þann 17. maí nk. og kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 18. maí í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst hann kl. 8:30.