Eimskip kynnir umhverfisvænna og áreiðanlegra siglingakerfi

Eimskip mun á fyrsta ársfjórðungi næsta árs innleiða mikilvægar breytingar á gámasiglingakerfi félagsins sem hafa það að markmiði að styrkja enn frekar þjónustu við viðskiptavini með áreiðanlegri og umhverfisvænni siglingum og minnka kolefnisspor.  Breytingar fela það í sér að einfalda siglingakerfið enn frekar, fækka viðkomum í höfnum og stytta siglingaleiðir og þar með minnka kolefnislosun og lækka kostnað. Sú breyting sem nú er kynnt er lokafasi í verkefni sem hófst fyrr á árinu með siglingakerfisbreytingum sem innleiddar voru á vormánuðum.  

Helstu atriði

Breytingarnar eru hluti af vegferð sem hófst fyrr á þessu ári þar með breytingum á strandsiglingum við Ísland og samþættingu frystiskipakerfis í Noregi við gámasiglingakerfið í gegnum Færeyjar ásamt nýju skipi, Bakkafoss, sem kom í þjónustu á Norður-Ameríku leiðinni.

Framundan eru því breytingar á þremur siglingaleiðum félagsins, þ.e. rauðu, gulu og bláu. Rauða leiðin verður áfram í samsiglingum með RAL en með þeirri breytingu að leiðin mun hafa viðkomu í Bremerhaven í Þýskalandi og á móti fækkar viðkomum í öðrum höfnum. Bláa leiðin mun ekki lengur sigla til Bremerhaven en mun bæta við viðkomu á norðurleiðinni í Teesport í Bretlandi fyrir innflutning til Íslands. Gula leiðin breytist töluvert en mun áfram gegna mikilvægu hlutverki fyrir Vestmannaeyjar og fær aukið vægi í þjónustu við Færeyjar.

Breytingarnar styðja við umhverfismarkmið félagsins og bjóða viðskiptavinum áreiðanlega og umhverfisvænni flutninga ásamt því að mæta auknum alþjóðlegum kröfum. Þá eru þær einnig hluti af mótvægisaðgerðum Eimskips til að draga úr þörf til kaupa á losunarheimildum í tengslum við vænta innleiðingu á European Emission Trading System (ETS) í byrjun árs 2024.

Frekari upplýsingar um breytingarnar er að finna á heimasíðu félagsins og allar nánari upplýsingar veita viðskiptastjórar félagsins.