EIMSKIP: EBITDA hækkaði um 21,6% á öðrum ársfjórðungi 2016

GYLFI SIGFÚSSON FORSTJÓRI

„Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 16,2 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi 2016 og hækkaði um 21,6% samanborið við sama tímabil í fyrra. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 126,1 milljón evra og drógust saman um 0,4%. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 9,1% frá öðrum ársfjórðungi síðasta árs. Tekjur af áætlunarsiglingum hækkuðu um 4,9 milljónir evra. Góður vöxtur var í flutningum tengdum Íslandi og Noregi, en samdráttur var í Færeyjum. Tekjur af flutningsmiðlun drógust saman um 5,4 milljónir evra vegna áhrifa af lækkandi verðum í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Magn í flutningsmiðlun dróst saman um 1,2% samanborið við sama tímabil í fyrra. Stafar breytingin einkum af samdrætti í frystiflutningsmiðlun frá Kína, en aðrir markaðir hafa verið í vexti.

Vegna breytinga á siglingakerfi, hagræðingarverkefna, aukins kostnaðaraðhalds og lækkandi verðs í alþjóðlegri flutningsmiðlun dróst rekstrarkostnaður að meðtöldum launakostnaði saman um 3,0% á fjórðungnum og er það góður árangur í ljósi mikilla kostnaðarhækkana vegna kjarasamninga á Íslandi.

Jákvæður viðsnúningur á gengismun nam 2,1 milljón evra á fjórðungnum og var hagnaður eftir skatta 8,8 milljónir evra, sem er vöxtur um 58,7% frá öðrum ársfjórðungi 2015. Handbært fé frá rekstri nam 15,7 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 11,8 milljónir evra á sama tímabili í fyrra og nam handbært fé 47,5 milljónum evra í lok júní. Þetta er besti árangur sem náðst hefur á öðrum ársfjórðungi í rekstri félagsins frá árinu 2009 hvað varðar EBITDA, EBIT, hagnað og handbært fé frá rekstri.

Rekstrartekjur félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins námu 239,4 milljónum evra og voru óbreyttar á milli ára. EBITDA tímabilsins nam 25,8 milljónum evra og jókst um 6,7 milljónir eða 35,2% evra frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður tímabilsins jókst um 50,6% og nam 10,6 milljónum evra. Flutt magn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 8,6% samanborið við fyrstu sex mánuði fyrra árs og magn í flutningsmiðlun jókst um 2,2%.

Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line undirrituðu í maí viljayfirlýsingu um að tengja Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips. Félögin hafa frá þeim tíma unnið að því að móta og meta mögulegt samstarf um fjárfestingu í gámaskipum og samtengingu siglingakerfa. Verkefnið gengur samkvæmt áætlun og gerum við ráð fyrir að ákvörðun liggi fyrir fljótlega.

Frá því í maí hefur undirbúningur fjárfestingarverkefna gengið vel og Eimskip stefnir að því að ljúka á þriðja og fjórða ársfjórðungi kaupum á nokkrum fyrirtækjum í Evrópu sem falla undir okkar kjarnastarfsemi. Félagið er nú í samstarfi við alþjóðleg lögfræði- og endurskoðunarfyrirtæki til að ljúka áreiðanleikakönnunum.

Eins og áður hefur komið fram er það áfram markmið okkar að vaxa, bæði með innri vexti og með kaupum á  fyrirtækjum sem falla að starfsemi félagsins og auka virði þess. Við munum halda áfram á sömu braut í að vinna að fjárfestingum í fyrirtækjum og skipum. Við munum ekki auka hlutafé til að ljúka mögulegum fjárfestingum en munum hins vegar nota handbært fé og auka lántökur til að koma skuldsetningu fyrirtækisins í eðlilegra horf, þó þannig að efnahagsreikningur félagsins verði áfram sterkur.

Horfur um þriðja ársfjórðung eru í samræmi við okkar væntingar og er afkomuspá fyrir árið 2016 óbreytt frá því sem kynnt var í maí, eða EBITDA á bilinu 49 til 53 milljónir evra.“

FREKARI UPPLÝSINGAR