Eimskip kynnir afkomu þriðja ársfjórðungs 2013

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Afkoma á þriðja ársfjórðungi er í takt við okkar væntingar. Flutt magn til og frá Íslandi jókst samanborið við síðasta ár og snéri við þeirri þróun sem orðið hafði á fyrri hluta ársins. Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á þriðja ársfjórðungi jókst um 4,1% á milli ára og var vöxtur á öllum markaðssvæðum. Magn í alþjóðlegri flutningsmiðlun á þriðja ársfjórðungi jókst um 7,6% á milli ára.

Rekstrartekjur á þriðja ársfjórðungi jukust um 0,8% á milli ára og námu 113,5 milljónum evra. EBITDA nam 12,1 milljón evra sem er hækkun um 5,2% frá fyrra ári að teknu tilliti til einskiptiskostnaðar vegna skráningar félagsins á markað á síðasta ári. Eins og áður hefur komið fram gerði félagið umfangsmiklar breytingar á siglingakerfinu í mars sem jók afkastagetu kerfisins um 7,7% og hefur breytingunum verið vel tekið af viðskiptavinum innanlands og erlendis. Afkoma tengd starfsemi Eimskips á Íslandi er enn undir okkar væntingum en er þó í samræmi við efnahagsástandið á Íslandi, flutningsmagn til landsins og skort á  verkefnum tengdum fjárfestingum á Íslandi. Aftur á móti hefur starfsemi félagsins utan Íslands haldið áfram að vaxa, bæði þjónusta við áætlunarsiglingar utan Íslands og alþjóðleg flutningsmiðlun. Það sýnir sig hversu mikilvægt er fyrir félagið að hafa fjölbreyttar stoðir undir rekstrinum. Við höldum áfram að leita tækifæra til innri vaxtar og horfum til fjárfestinga sem falla að rekstri og stefnu félagsins.    

Dótturfélag Eimskips, TVG-Zimsen, hóf í október samstarf við skipafélagið Royal Arctic Line. Með samstarfinu, sem er í samræmi við stefnu félagsins, er TVG-Zimsen að stíga mikilvægt skref á Norður-Atlantshafi, þar sem við teljum að mikil tækifæri muni liggja í framtíðinni.

Eimskip hefur áfram verið að styrkja innviði félagsins á Íslandi með því að taka í notkun tvær nýjar byggingar. Önnur byggingin er nýtt og fullkomið verkstæði í Sundahöfn sem mun þjóna viðgerðaþjónustu fyrir sérhæfðan tækjabúnað Eimskips. Hin byggingin er ný dreifingarmiðstöð á Reyðarfirði sem mun styrkja til muna þjónustu félagsins á Austurlandi.

Almennt erum við ánægð með þau jákvæðu viðbrögð sem félagið hefur fengið við bættri þjónustu við viðskiptavini á Íslandi, á Norður-Atlantshafi og í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Með árangri okkar á þriðja ársfjórðungi erum við að sjá ávinninginn af okkar stefnu. Þess vegna endurskoðum við markmið okkar um rekstrarhagnað ársins 2013 og gerum ráð fyrir að EBITDA ársins muni verða á bilinu 37 til 40 milljónir evra.“

  Frekari upplýsingar