HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU FJÓRÐA ÁRSFJÓRÐUNGS
HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU ÁRSINS 2024
VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI
“Við erum ánægð með afkomu ársins 2024, sérstaklega í ljósi erfiðrar byrjunar á árinu. Niðurstöður fyrsta ársfjórðungs voru undir væntingum, en jákvæð þróun átti sér stað þegar líða fór á árið og rúmlega 60% af EBITDA varð til á seinni helmingi ársins. Bætt afkoma var drifin áfram af góðri frammistöðu gámasiglingakerfisins á seinni hluta ársins með stórbættri afkomu í Trans-Atlantic þjónustu, góðu magni og samsetningu þess í útflutningi frá Íslandi og mun betri afkomu í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Jákvæða þróun í Trans-Atlantic má rekja til aukningar í magni og hærri alþjóðlegra flutningsverða, sem að hluta til mátti rekja til yfirvofandi verkfalla hafnarverkamanna á austurströnd Bandaríkjanna. Innflutningur til Íslands var minni en á árinu 2023, sérstaklega innflutningur á bifreiðum eins og búist var við. Innflutningur til Færeyja jókst á seinni helmingi ársins, með auknum stórflutningum og þá jókst magn í frystiflutningakerfinu í Noregi á milli ára, þó afkoma hafi verið lakari í ljósi óhagstæðar samsetningar í flutningi. Afkoma á innanlandssviði var sambærileg við árið á undan með áframhaldandi góðum gangi í sjávarútvegi og laxeldi.
Alþjóðlegir flutningsmarkaðir eru einstaklega dýnamískir með miklu flökti í flutningsverðum og við sáum vissulega mikla hækkun á alþjóðlegum flutningsverðum á árinu, sem höfðu áhrif á flutningskostnað viðskiptavina okkar, á meðan flutningsverð innan gámasiglingakerfis Eimskips héldust nokkuð stöðug. Við gerðum breytingar á siglingakerfinu í byrjun árs með það að markmiði að auka þjónustu við viðskiptavini og minnka kostnað og náðum að draga úr fjölda sigldra mílna og olíukostnaði á sama tíma og áreiðanleiki jókst.
Við héldum áfram að fjárfesta í innviðum félagsins og námu viðhaldsfjárfestingar um 27 milljónum evra og nýfjárfestingar um 11,5 milljónum evra, sem var í takt við áætlanir. Ný fjárfestingaáætlun gerir ráð fyrir viðhaldsfjárfestingum á bilinu 29-32 milljónum evra á næstu þrem árum og 15-18 milljóna evra nýfjárfestingum á sama tímabili. Nýfjárfestingar í skipaflota, sem hafa verið í vinnslu síðasta eina og hálfa árið, eru ekki hluti af þessum áætlunum þar sem formleg ákvörðun um slíkar fjárfestingar hefur ekki verið tekin.
Við héldum áfram að styðja við þróun starfsfólks okkar og kynntum ný námskeið og starfsþróunarefni í Eimskipsskólanum, sem er stafrænt fræðslukerfi, sem hefur fengið góðar viðtökur og vakið ánægju meðal starfsfólks. Við héldum upp á útskrift fimmta árgangs alþjóðlegrar leiðtogaþjálfunar sem Eimskip hefur boðið upp á undanfarin ár og höfum nú útskrifað 131 þátttakanda á síðustu þremur árum. Af þeim hafa 39 nú þegar hlotið framgang í starfi innan fyrirtækisins eftir útskrift.
Síðasta haust hófum við að bjóða öllu starfsfólki á Íslandi sem ekki hefur íslensku að móðurmáli upp á íslenskunám í gegnum snjallforritið “Bara tala”, sem veitir því aukin tækifæri til að efla og þróa íslenskukunnáttu sína, bæði í lífi og í starfi.
Horft fram á við erum við nokkuð bjartsýn og horfur fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2025 eru góðar þrátt fyrir ákveðna óvissu í ljósi yfirvofandi aðgerða bandarískra stjórnvalda tengdum innflutningstollum og áframhaldandi átaka í Rauða hafinu, sem getur haft mikil áhrif á magn og alþjóðleg flutningsverð.
Að lokum vil ég þakka okkar metnaðarfulla starfsfólki um allan heim sem sýnir seiglu og útsjónarsemi alla daga með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu umhverfi.“
KYNNINGARFUNDUR 5. FEBRÚAR 2025
Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 5. febrúar kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Fundurinn verður einnig rafrænn og verður honum streymt beint á fjárfestasíðu Eimskips www.eimskip.com/investors. Þar munu Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri og Rósa Guðmundsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins fyrir fjórða ársfjórðung og fjárhagsárið 2024. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður einnig hægt að nálgast á fjárfestasíðunni.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Rósa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri , sími: 844 4776, netfang: investors@eimskip.com
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími 844 4752, netfang: investors@eimskip.com
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.