EIM: Endanleg dagskrá hluthafafundar 24. júlí 2018

Hluthafafundur verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins Korngörðum 2, Reykjavík, þann 24. júlí 2018 og hefst kl. 16:00.

Ein breytingartillaga barst við áður auglýsta dagskrá innan tilskilins frests. Stjórn félagsins hefur ákveðið að breyta tillögum sínum til samræmis við breytingartillöguna.

Endanleg dagskrá fundarins:

  1. Tillaga um lækkun hlutafjár.
  2. Tillaga stjórnar um heimild til kaupa á eigin hlutum.
  3. Önnur mál löglega upp borin.

Meðfylgjandi eru endanleg dagskrá og tillögur fundarins.

Skjöl sem lögð verða fyrir fundinn er að finna á vefsíðu félagsins www.eimskip.com/investors