Eimskip kynnir umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi félagsins

Eimskip hefur verið með í undirbúningi  breytingar á siglingakerfi félagsins sem miða að því að útvíkka kerfið á Norður-Atlantshafi, fjölga viðkomuhöfnum og bæta við einu gámaskipi í flotann. Breytingar á viðkomuhöfnum í Bandaríkjunum gera það mögulegt að ráðast nú í frekari breytingar. Frá og með 26. mars 2013 mun Eimskip hefja viðkomur í Portland, Maine á austurströnd Bandaríkjanna í stað þess að sigla á Everett og Norfolk í Virgina, en með þeirri ráðstöfun styttist hringferðartími skipanna. Þann 14. mars n.k. fer Brúarfoss frá Reykjavík í sína fyrstu strandsiglingu norður fyrir Ísland með tengingu við Færeyjar, Bretland og meginland Evrópu.

Helstu breytingar á siglingakerfinu eru þessar:

Gylfi Sigfússon, forstjóri

„Það er mér sérstök ánægja að tilkynna þessar viðamiklu breytingar á siglingakerfi Eimskips sem verið hafa í undirbúningi í meira en ár. Forsenda þeirra  er flutningur á hafnaraðstöðu félagsins frá Everett og Norfolk í Virginíu í Bandaríkjunum til Portland, Maine. Aukin umsvif félagsins á Norður-Atlantshafi, í Bandaríkjunum, Nýfundnalandi, Færeyjum og Noregi gera félaginu kleift að bjóða uppá strandsiglingaþjónustu á Íslandi. Með því að fjölga viðkomuhöfnum á Íslandi og í Færeyjum skapast ný tækifæri fyrir viðskiptavini Eimskips. Breytt siglingakerfi tengir frændþjóðirnar Ísland og Færeyjar beint við inn- og útflutningsmarkaði, dregur úr umferð á  vegum ásamt því að lækka flutningskostnað viðskiptavina. Víðsvegar um landið er  iðnaður í þróun og er nú fjölbreyttari en áður var, auk þess sem fjölbreytni í sjávarútvegi hefur aukist.

Það er von mín að þessar breytingar muni gera viðskiptavinum okkar á Íslandi, í Noregi, Færeyjum og Nýfundnalandi auðveldara með að koma afurðum sínum á markað og kaupa hráefni með þægilegri, hagkvæmari og markvissari hætti en áður.“

Frekari upplýsingar