Um klukkan 0600 í morgun (16.11.2012) strandaði frystiskipið Polfoss skip Eimskipafélagsins við Eyjuna Altra í norður Noregi.
Ekki urðu slys á áhöfn og ekki vitað um skemmdir á skipi og farmur er óskemmdur. Polfoss strandaði á sandgrynningum og ekki hefur verið vart við neinn olíuleka út skipinu. Skipið var að á leið frá Melbu til Alesund þegar óhappið varð. Veður á standstað er gott. Áhöfnin er að meta aðstæður og næsta flóð er um klukkan 13.45 á staðartíma.
Ekkert er vitað um tildrög strandsins að svo stöddu en félagið er vátryggt fyrir tjónum sem þessum.
Frekari upplýsingar verða veittar þegar þær liggja fyrir.