Vísað er til fréttar frá 30. júní sl. um kröfu Eimskips að rannsókn Samkeppniseftirlitsins verði úrskurðuð ólögmæt og að henni skuli hætt.
Kröfur Eimskips í málinu eru tvíþættar: Annars vegar að rannsókn Samkeppniseftirlitsins verði úrskurðuð ólögmæt og að henni skuli hætt. Hins vegar að haldi þeirra gagna sem eftirlitið tók í tveimur húsleitum verði aflétt og afritum þeirra eytt.
Samkeppniseftirlitið krafðist þess að báðum kröfunum yrði vísað frá héraðsdómi. Í dag úrskurðaði héraðsdómur Reykjavíkur um frávísunarkröfu Samkeppniseftirlitsins í málinu. Dómurinn hafnaði kröfu Samkeppniseftirlitsins um frávísun málsins í heild sinni, en féllst á að vísa frá kröfu Eimskips um að rannsóknin yrði úrskurðuð ólögmæt og henni skuli hætt. Eimskip mun kæra þann hluta málsins til Landsréttar, en fagnar niðurstöðunni að öðru leyti.
Nánari upplýsingar veitir Edda Rut Björnsdóttur, markaðs- og samskiptastjóri í síma 825-3399 eða investors@eimskip.is