Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 17. mars 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, Reykjavík og hefst kl. 16:00.
Breytingartillögur bárust frá hluthafa innan þess frests sem getið var um í fundarboði félagsins þann 25. febrúar sl. Í kjölfarið fundaði stjórn og samþykkti að leggja tillögurnar fram á aðalfundinum.
Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar eru því meðfylgjandi.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.eimskip.is/investors/agm