Eimskipafélag Íslands hf. – Útboð á nýjum skuldabréfaflokki

Eimskipafélag Íslands hf. efnir til útboðs á nýjum skuldabréfaflokki, EIM 261130, fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi.

Skuldabréfaflokkurinn EIM 261130 er óverðtryggt vaxtagreiðslubréf til fjögurra ára, með föstum vöxtum og vaxtagreiðslum á þriggja mánaða fresti. Höfuðstóll greiðist í einu lagi á lokagjalddaga, 26. nóvember 2030. Skuldabréfin eru gefin út í 20.000.000 kr. nafnverðseiningum.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfu. Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Skuldabréfin verða í kjölfarið seld á pari og ráðast fastir vextir skuldabréfsins út frá því.

Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða föstudaginn 20. nóvember 2026. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður fimmtudaginn 26. nóvember 2026.

Útboðið er undanþegið skyldu til birtingar lýsingar á grundvelli c-liðar 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sem lögfest var með lögum nr. 14/2020. Lýsing verður birt á vefsíðu félagsins www.eimskip.com/investors að fenginni staðfestingu Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, áður en skuldabréfaflokkurinn verður tekinn til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Samkvæmt skilmálum útgáfunnar skal flokkurinn tekinn til viðskipta fyrir 1. júní 2027.

Landsbankinn hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað til Landsbankans hf. fyrir kl. 16:00 á útboðsdegi, fimmtudaginn 19. nóvember 2026, á netfangið: verdbrefamidlun@landsbankinn.is

Frekari upplýsingar veita:

Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður Fjárstýringar, í síma 844 4752 eða investors@eimskip.com.
Gunnar S. Tryggvason, Verðbréfamiðlun Landsbankans, í síma 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is