Eimskip: Heildarfjöldi hluta og atkvæða

Vísað er til hlutafjárlækkunar félagsins sem var framkvæmd 14. ágúst 2018.

Í 84. gr. verðbréfaviðskiptalaga nr. 108/2007 segir að ef útgefandi lækkar hlutafé skuli hann, á síðasta viðskiptadegi þessa mánaðar er breytingar eiga sér stað, birta opinberlega heildarfjölda hluta og heildarfjölda atkvæða.

Með vísan til þessa upplýsist að hlutafé félagsins er kr. 187.000.000 og hver hlutur er ein króna. Eigin hlutir eru kr. 360.770 og heildarfjöldi atkvæða því kr. 186.639.230.